Company Announcements

Festi hf.: Birting uppgjörs 3. ársfjórðungs 2024 þann 30. október 2024 og afkomufundur þann 31. október

Source: GlobeNewswire
Festi hf.: Birting uppgjörs 3. ársfjórðungs 2024 þann 30. október 2024 og afkomufundur þann 31. október

Festi birtir uppgjör sitt fyrir 3. ársfjórðung 2024 eftir lokun markaða miðvikudaginn 30. október næstkomandi.

Afkomufundur með markaðsaðilum 31. október kl. 8:30.

Afkomufundur fyrir markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 31. október 2024 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi. Á fundinum munu Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi, kynna afkomu samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi og svara spurningum.

Fundinum verður einnig streymt beint á vefsíðu félagsins þar sem skráning á fundinn fer jafnframt fram: https://www.festi.is/tenglar/uppgjor-3f-2024. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur með því að senda tölvupóst á netfangið fjarfestatengsl@festi.is. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: https://www.festi.is/fjarhagsupplysingar.